AkureyrarAkademían hefur tekið í notkun nýja vefsíðu sem hægt er að skoða á akak.is. Í tilefni af nýju vefsíðunni býður AkureyrarAkademían upp á leik sem felst í því að leysa lauflétta krossgátu á forsíðu síðunnar.
„Til þess að gera það þarftu að setja þig í spor Sherlock Holmes, skoða upplýsingar á síðunni og ráða krossgátuna og finna lausnarorðið, og senda það inn með því að smella á textahnappinn fyrir neðan krossgátuna. Við ætlum að draga úr réttum innsendum lausnarorðum, þriðjudaginn 11. apríl næstkomandi Einn heppinn einstaklingur verður Akademón vefsíðunnar og fær verðlaun að auki,“ segir í tilkynningu AkureyrarAkademíunnar.
AkureyrarAkademían er fræða- og þekkingarsetur á Akureyri, stofnað árið 2006, og er til húsa í verslunarmiðstöðinni við Sunnuhlíð 12, Akureyri. Þar er einstaklingum er boðið upp á vinnuaðstöðu til að sinna sínum hugðarefnum og almenningi upp á viðburði, ýmist á eigin vegum eða í samstarfi við aðra. Háskólanemar og fjölbreyttur hópur vísinda-, fræði- og listamanna sem og frumkvöðla hafa notið vinnuaðstöðu hjá AkureyrarAkademíunni um lengri eða skemmri tíma.
„Við höfum staðið fyrir fjölmörgum viðburðum sem hafa auðgað mannlíf og menningarstarf á Akureyri þar sem áhersla hefur verið lögð á að kynna fjölbreytt viðfangsefni með aðgengilegum og áhugaverðum hætti, virkja almenning til þátttöku og stuðla að umræðum,“ segir í tilkynningu.
UMMÆLI