Á vef Akureyrarbæjar eru Akureyringar minntir á að notkun nagladekkja er almennt bönnuð á Íslandi frá og með 15. apríl til og með 31. október nema aðstæður gefi tilefni til annars. Bæjarbúar eru hvattir til að skipta út nagladekkjum sem allra fyrst.
„Nagladekk slíta malbiki hraðar en önnur dekk sem hefur í för með sér aukinn viðhaldskostnað. Þau stuðla líka að auknum eldsneytiskostnaði, valda óþarfa hávaða og draga úr loftgæðum,“ segir á vef Akureyrarbæjar.
„Hreinsun gatna er nú hafin af fullum þunga í bænum. Sveitarfélagið leggur ríka áherslu á að minnka svifryk og mengun sem af því stafar, til dæmis með því að bleyta götur, hefja sópun gatna fyrr á vorin og þvo þær í ríkari mæli. Hjálpumst að við að bæta loftgæðin og minnka hávaða á götunum – tökum nagladekkin úr umferð svo fljótt sem verða má.“
UMMÆLI