Trésmiðjan Börkur mun hætta starfsemi sinni á Akureyri innan skamms. Öllu starfsfólki Trésmiðjunnar var sagt upp störfum í lok mars og verður skellt í lás á staðnum í seinasta lagi um mánaðarmótin maí – júní næstkomandi. Þetta kemur fram á vef Vikublaðsins.
Trésmiðjan Börkur var stofnuð á Akureyri árið 1970 og hefur alla tíð lagt áherslu á smíði glugga og hurða. Lyf og heilsa keypti fyrirtækið í apríl árið 2018. Fyrirtækið hefur verið til húsa í Njarðarnesi 3-7 á Akureyri. Starfsmenn fyrirtækisins á Akureyri voru 19 talsins.
UMMÆLI