Vikar Mar Valsson og Nik Peros hafa tekið við rekstri á veitingastaðnum í Bjórböðunum á Árskógssandi. Vikar og Nik reka einnig veitingastaðinn Eyri á Hjalteyri. Þeir munu taka við rekstrinum 1. apríl næstkomandi.
Bjórböðin á Árskógssandi opnuðu árið 2017 ásamt veitingastaðnum. Í dag á Kaldi og rekur bruggsmiðjuna Kalda, Bjórböðin, Hótel Kalda og veitingastaðinn í Bjórböðunum.
UMMÆLI