Nú laust fyrir hádegið varð umferðóhapp á Hringveginum við Þverá í Öxnadal á milli rútu og flutningabíls. Af þeim sökum er Hringvegurinn lokaður og verður um sinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eytra. Lögreglan bendir á að Ólafsfjarðarvegur og Siglufjarðarvegur eru opnir.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu er engin aðili alvarlega slasaður og eru viðbragðsaðilar á vettvangi.
UMMÆLI