Framsókn

Áhyggjur á SAk vegna komu skemmtiferðaskipa

Áhyggjur á SAk vegna komu skemmtiferðaskipa

Á fundi bæj­ar­ráðs Ak­ur­eyr­ar í síðustu viku voru komur skemmtiferðaskipa til bæjarins og áhrif þeirra á starfsemi Sjúkrahússins til umræðu. Stjórn­end­ur Sjúkra­húss­ins á Ak­ur­eyri hafa lýst yfir áhyggj­um vegna álags sem skap­ast vegna komu ferðamanna á skemmti­ferðaskip­um yfir sum­ar­tím­ann. 

Sigurður Einar Sigurðsson framkvæmdastjóri lækninga og handlækningasviðs á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Hulda Ringsted framkvæmdastjóri hjúkrunar á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Jón Pálmi Óskarsson forstöðulæknir bráðalækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri, Inga Dís Sigurðardóttir formaður stjórnar Hafnasamlags Norðurlands og Pétur Ólafsson hafnarstjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Í bókun bæjarráðs segir:

Bæjarráð þakkar gestum fyrir komuna á fundinn og að vekja athygli á áhyggjum stjórnenda SAk vegna þess sérstaka álags sem skapast vegna komu ferðamanna á skemmtiferðaskipum í sumar. Mikilvægt er að Akureyrarbær og Hafnasamlag Norðurlands taki þátt í þeirri samvinnu og samhæfingu sem þarf til að tryggja bæði öfluga heilbrigðisþjónustu og örugga móttöku ferðamanna. Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó