Vopn sem nemandi í Lundarskóla á Akureyri mætti með í skólann fyrir helgi var ekki þrívíddarprentað. Kári Erlingsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra hefur staðfest þetta í samtali við mbl.is.
Samkvæmt heimildum mbl.is var vopnið úr tré en óljóst er hve miklum skaða það hefði getað valdið.
Sjá einnig: Mætti með heimatilbúið skotvopn í skólann
Nemandi á unglingastigi í Lundarskóla á Akureyri mætti með heimatilbúið skotvopn í skólann fyrir helgi og sýndi af sér ógnandi hegðun gagnvart kennara.
Foreldrar nemenda í skólanum hafa ekki áhyggjur af málinu þar sem það er í farvegi. Þetta segir Vilborg Hjörný Ívarsdóttir, formaður foreldrafélags Lundarskóla í samtali við mbl.is. Um hafi verið að ræða einstakt tilfelli og að engin raunveruleg hætta hafi stafað af nemandanum.
UMMÆLI