Framsókn

Skjámyndakerfi sem sýnir úr hvaða rými skipsins brunaviðvörun berstHægt er að hafa skjámyndakerfið á mörgum skjám í einu / myndir samherji.is

Skjámyndakerfi sem sýnir úr hvaða rými skipsins brunaviðvörun berst

Um borð í uppsjávarveiðiskipi Samherja, Vilhelm Þorsteinssyni EA 11, hefur verið tekið í notkun skjámyndakerfi sem tengt er við brunaviðvörunarkerfi skipsins. Með tilkomu kerfisins getur áhöfnin séð með myndrænum hætti í hvaða rými skipsins viðvörun kviknar og þar með brugðist fyrr við en ella og með ákveðnari hætti. Ekki er vitað til þess að annað fiskiskip í heiminum sé búið slíku viðvörunarkerfi, enda þannig búnaður aðeins í stórum skipum, svo sem skemmtiferðaskipum.

Nærri tveggja ára undirbúningur

Vilhelm Þorsteinsson kom nýr til landsins fyrir tæpum tveimur árum. Skipið er á allan hátt mjög vel útbúið, þar með töldu öflugu brunaviðvörunarkerfi. Fljótlega eftir komu skipsins var farið að ræða möguleika á að bæta búnaðinn enn frekar og setja upp skjámyndakerfi í brúnni, þannig að skipstjórn geti strax séð á tölvuskjá hvar hitastig hefur hækkað óeðlilega mikið eða eldur kviknað.

Vilhelm Þorsteinsson EA 11

Samherji leitaði til fyrirtækisins Nortek, sem hefur áralanga reynslu í uppsetningu og viðhaldi brunaviðvörunarkerfa í skipum og bátum.

Búnaðurinn einfaldur í notkun

„Sjálft brunaviðvörunarkerfið var framleitt af sænska fyrirtækinu Consilium og við unnum að útfærslu skjámyndakerfisins í samvinnu við Svíana og Samherja. Okkar hlutverk var að setja upp tölvubúnaðinn, samhæfa og gera allar nauðsynlegar prófanir. Öllu þessu er nú lokið og skjámyndakerfið hefur verið tekið í notkun,“ segir Heimir Ólafur Hjartarson svæðisstjóri hjá Nortek á Akureyri.

Heimir segir að grunnkerfi brunavarna í skipinu sé af fullkomnustu gerð, skjámyndakerfið geri það þó enn öruggara.

Heimir Ólafur Hjartarson

„Fyrir áhöfnina er þetta í raun bylting, með þessum búnaði verður hægt að bregðast við mun fyrr, skapist hætta. Búnaðurinn er tiltölulega einfaldur í notkun. Ég veit ekki til þess að slíkt kerfi sé í öðru fiskiskipi í heiminum, þannig að Samherji er þarna að stíga mjög stórt skref í öryggismálum. Ég er ekki í vafa um að þetta kemur til með að vekja verðskuldaða athygli. Hjá okkur er næsta skref að setja upp eins búnað í Börk NK, sem er í eigu Síldarvinnslunnar og er systurskip Vilhelms Þorsteinssonar,“ segir Heimir.

Góð og skynsamleg viðbót

Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni segir að starfsmenn Samherja hafi séð skjámyndakerfi fyrir brunavarnir á tæknisýningu fyrir nokkrum árum síðan. Í kjölfarið hafi vaknað áhugi á að setja upp slíkan búnað í skipum félagsins.

„Sænska fyrirtækið Consilium er framarlega á sviði brunavarna og við höfum í gegnum tíðina verið í farsælu samstarfi við Nortek um alls 

Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri

konar tæknilausnir og þjónustu. Stóra málið er engu að síður að viðhalda með öllum tiltækum ráðum forvörnum um borð og sýna í árvekni í hvívetna. Áhöfnin er mjög meðvituð um mikilvægi eftirlits, þjálfunar og forvarna í öryggis- og eldvarnarmálum og útgerðin leggur ríka áherslu á þessa þætti. Þetta skjámyndakerfi er góð og skynsamleg viðbót í þeim efnum. Við Íslendingar teljumst vera framarlega í brunavörnum í skipum og eigum hiklaust að vera það áfram,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni.

VG

UMMÆLI

Sambíó