Handknattleiksdeild KA hefur gert þriggja ára samning við Halldór Stefán Haraldsson um að taka við stjórn KA eftir núverandi tímabil. Jónatan Magnússon þjálfar liðið í dag en hann hefur áður gefið það út að hann myndi hætta með liðið í vor. Þetta kemur fram á vef KA.
Halldór Stefán, sem er 32 ára, er með mikla reynslu í þjálfun þrátt fyrir ungan aldur. Á árunum 2011 til 2016 stýrði hann kvennaliði Fylkis. Þá stýrði hann einnig yngri landsliðum kvenna á árunum 2012 til 2015.
Hann var í kjölfarið ráðinn aðalþjálfari liðs Volda í Noregi þar sem hann hefur þjálfað frá árinu 2016 en hann lætur nú staðar numið þar og kemur til KA næsta sumar.Volda hefur náð frábærum árangri undir stjórn Halldórs en hann hefur komið liðinu úr C-deild upp í norsku úrvalsdeildina.
„Halldór Stefán er ungur, efnilegur og spennandi þjálfari sem KA byggir miklar vonir við að haldi áfram því flotta starfi sem hefur verið unnið hjá félaginu. Halldór er einnig ráðinn sem afreksþjálfari hjá KA og er honum ætlað að koma enn meiri metnaði í afreksþjálfun fyrir yngri iðkendur hjá handknattleiksdeild KA. Einnig mun hann vera til aðstoðar og ráðlegginga við þjálfun á ungmennaliði sem og liði 3. flokks karla.
Halldór Stefán er með Master Coach gráðu sem og Master Coach Pro réttindi frá EHF síðan 2020. Árið 2015 kláraði hann IHF Top Handball og EHF Youth þjálfararéttindi síðan 2012. Þá er hann með B.Sc í Sport Science frá Háskólanum í Reykjavík sem hann kláraði árið 2013.
KA fagnar því að Halldór Stefán ætli að taka þátt í okkar flotta starfi og bjóðum við hann og fjölskyldu hans velkomin norður næsta sumar,“ segir í tilkynningu KA.
UMMÆLI