Opna skemmtistað fyrir alla fjölskylduna á Akureyri

Opna skemmtistað fyrir alla fjölskylduna á Akureyri

Karlito Galanonim hefur opnað leikjasal fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur á Akureyri. Leikjasalurinn Norðurlandia opnaði 1. febrúar við Hólabraut 12 á Akureyri þar sem Borgarbíó var áður.

Karlito segir í samtali við Kaffið að hann hafi lengi viljað opna slíkan stað á Akureyri þar sem að honum hefur fundist vanta stað þar sem börn geta hist, skemmt sér og slappað af.

„Að mínu mati hafa ekki verið neinir svona skemmtilegir staðir þar sem börn geta komið saman og kynnst hvort öðru,“ segir Karlito.

Á staðnum má meðal annars finnafinna spilakassavélar, skemmtivélar, flughermi og 9D hermi. Karlito segir að staðurinn sé tilvalinn fyrir skólaferðalög, afmælishátíðir og til þess að eyða tíma saman með vinum og fjölskyldu.

Sambíó

UMMÆLI