NTC

Rafeyri hlýtur Forvarnaverðlaun VÍSGuðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, ásamt Hannesi Garðarssyni, skrifstofu-, öryggis- og gæðastjóra Rafeyrar, Kristni Hreinssyni, framkvæmdastjóra Rafeyrar og Guðmundi Ólafssyni, forstöðumanni fyrirtækjaviðskipta VÍS. Mynd: vis.is

Rafeyri hlýtur Forvarnaverðlaun VÍS

Forvarnaverðlaun VÍS voru afhent í gær en verðlaunin hlýtur það fyrirtæki sem þykir skara fram úr í öryggismálum og er öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd. Verðlaunað er fyrir sterka öryggismenningu þar sem unnið er markvisst í að efla öryggisvitund og öryggishegðun. Að þessu sinni hlaut rafverktakinn Rafeyri forvarnaverðlaun VÍS. Þetta kemur fram á vef VÍS.

Í frétt VÍS segir að stjórnendur Rafeyrar séu meðvitaðir um hvaða öryggismenning ríkir innan vinnustaðarins og hvaða áhrif þeir hafi á hana.

„Öryggisstjórnun innan fyrirtækisins á sér djúpar rætur og nær í gegnum alla starfsemina. Rík áhersla er lögð á að allt starfsfólk sé meðvitað um áhættuþætti í umhverfinu með öryggis-og forvarnarþjálfun. Starfsfólk er metið út frá kunnáttu og þekkingu. Það fær svo ákveðna einkunn í kerfi sem Rafeyri hefur þróað og aðlagað að starfseminni. Þannig er tryggt að réttur einstaklingur sé valinn í verkefnin, s.s. að hann sé með rétta kunnáttu og þekkingu.“

Rafeyri hefur þróað app fyrir verkfærin sem heldur utan ástand þeirra. Með því er tryggt að öryggið sé í fyrirrúmi, þ.e. að öll verkfæri séu í góðu ásigkomulagi og endurnýjuð á réttum tíma. Tíðni vinnuslysa á starfsfólki Rafeyrar er með því lægsta sem sést hjá VÍS allt frá upphafi — en Rafeyri hefur verið í viðskiptum hjá VÍS í tæp 30 ár.

„Það er okkur mikill heiður að verðlauna viðskiptavini okkar sem skara fram úr í öryggismálum og eru öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd. Við viljum styðja viðskiptavini okkar við að skapa sterka og öfluga öryggismenningu. Því við vitum árangur í öryggismálum er ekki heppni — heldur ákvörðun,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS.

VG

UMMÆLI

Sambíó