Enginn slasaðist alvarlega þegar rúta með 25 farþega valt skammt frá Múlagöngum Ólafsfjarðar megin.
Í tilkynningu lögreglunnar á Facebook segir:
„Laust fyrir klukkan 14:30 var tilkynnt um að rúta hefði farið út af og oltið á hliðina á Ólafsfjarðarvegi skammt frá Múlagöngum, Ólafsfjarðar megin. 25 farþegar voru í rútunni auk ökumanns og fararstjóra. Engin alvarleg slys urðu á fólki.
Lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningalið var sent á vettvang. Fjöldahjálparstöð var opnuð í Menntaskólanum á Tröllaskaga, þangað sem farþegar rútunnar voru fluttir og starfsfólk Rauðakrossins hlúði að þeim.
Lögregla vinnur að rannsókn að tildrögum slyssins á vettvangi.„
UMMÆLI