Akureyringurinn Hafþór Már Vignisson er genginn í raði norska handboltaliðsins Arendal sem leikur í norsku úrvalsdeildinni í handbolta. Handbolti.is greinir frá.
Hafþór hefur undanfarið spilað með þýska B-deildarliðinu Empor Rostock en hann gekk til liðs við Rostock frá Stjörnunni í Garðabæ síðastliðið haust.
Hafþór er 23 ára gamall og er uppalinn hjá Þór á Akureyri en hefur einnig leikið með ÍR hér á landi.
UMMÆLI