Framsókn

Steinþór verður áfram hjá KAMynd: KA.is

Steinþór verður áfram hjá KA

Knattspyrnudeild KA og Steinþór Freyr Þorsteinsson hafa gert eins árs framlengingu á samning sínum og því ljóst að Steinþór leikur með KA á næstu leiktíð. Þetta kemur fram á vef félagsins í dag.

Steinþór lauk nýverið sínu sjötta tímabili með KA eftir að hafa komið frá Sandnes Ulf í Noregi fyrir sumarið 2017. Steinþór sem er 37 ára hefur leikið 96 leiki fyrir KA í deild og bikar og hefur í þeim gert fimm mörk. Það eru því allar líkur á því að Steinþór bætist í 100 leikja hópinn hjá KA í sumar.

Steinþór er fæddur árið 1985 og er uppalinn hjá Breiðablik í Kópavogi þar sem hann hóf að leika með meistaraflokki aðeins 17 ára gamall. Árið 2009 gekk hann til liðs við Stjörnuna og sló þar í gegn og var valinn í A-landslið Íslands sama ár. Steinþór hefur leikið 8 landsleiki fyrir Ísland og fjölmarga yngrilandsliðsleiki.

„Þetta eru miklar gleðifregnir enda er Steinþór öflugur leikmaður og flottur karakter sem hefur komið sterkur inn í félagið. Það er afar jákvætt skref að halda Steinþóri áfram innan okkar raða en auk þess að vera öflugur leikmaður er hann frábær liðsmaður og flott fyrirmynd fyrir hina fjölmörgu ungu leikmenn okkar og mun halda áfram að miðla sinni miklu reynslu til þeirra,“ segir í tilkynningu KA.

VG

UMMÆLI