Kjartan Sigurðsson mun taka við starfi framkvæmdastjóra Skógarbaðanna í Eyjafirði í janúar. Tinna Jóhannsdóttir hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra í rúmt ár en hefur óskað eftir að láta af störfum.
Kjartan hefur rekið fyrirtækið Procedo ehf. undanfarin ár en fyrirtækið sérhæfir sig í almennri viðskiptaráðgjöf.
Kjartan mun hefja störf um miðjan janúar næstkomandi og Tinna verður honum til halds og trausts fyrstu vikurnar í starfi.
Kjartan er með MBA-gráðu í viðskiptastjórnun frá Coastal Carolina University, en hann kláraði einnig B.Sc. í viðskiptafræði hjá sama skóla. Meðfram starfi sínu situr Kjartan í sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar.
„Fyrir hönd stjórnar Skógarbaðanna þakka ég Tinnu fyrir mjög gott starf og óskum við henni góðs gengis í nýjum verkefnum. Á sama tíma hlökkum við til samstarfsins við Kjartan sem við vitum að mun hlúa vel að áframhaldandi velgengni Skógarbaðanna,“ segir Sigríður María Hammer stjórnarformaður í tilkynningu frá Skógarböðunum.
UMMÆLI