NTC

Brenna og flugeldasýning á Akureyri á gamlárskvöldMynd: Himar Friðjónsson

Brenna og flugeldasýning á Akureyri á gamlárskvöld

Hin árlega áramótabrenna á Akureyri verður á sínum stað við Réttarhvamm á gamlárskvöld, auk þess sem boðið verður upp á flugeldasýningu. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Í tilkynningju bæjarins segir: Kveikt verður í brennunni kl. 20.30 en flugeldasýningin hefst kl. 21.00. Það eru Norðurorka og starfsmenn umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sem standa fyrir þessari uppákomu í samstarfi við björgunarsveitina Súlur á Akureyri.

Að venju má búast við mikilli umferð við Réttarhvamm á gamlárskvöld og því er mælt með því að fólk leggi tímanlega af stað til að njóta brennunnar og flugeldanna.

Sambíó

UMMÆLI