Pizzastaðurinn Pizzan hefur lagt niður starfsemi sína á Akureyri. Pizzan hefur verið staðsett á Glerártorgi á Akureyri síðan í janúar árið 2021 en staðurinn lokaði 13. desember síðastliðinn.
„Við viljum þakka Akureyringum fyrir viðskiptin síðustu ár og vonumst til þess að fá að þjónusta ykkur aftur í náinni framtíð,“ segir í tilkynningu Pizzunnar.
Plássið sem Pizzan var í á Glerártorgi stendur nú laust því er bilið laust fyrir framkvæmdaglaða Akureyringa sem vilja tryggja sér pláss á Glerártorgi.
UMMÆLI