Jóhann Már Leifsson hefur verið valinn íshokkímaður ársins 2022 af stjórn Íshokkísambandi Íslands.
Jóhann Már hefur leikið með Skautafélagi Akureyrar (SA) allan sinn feril fyrir utan eitt tímabil í Bandaríkjunum með Niagra Fury árin 2011 til 2012 og eitt tímabil í Svíþjóð með Motala árin 2015 til 2016. Hann hefur verið lykilmaður í liði SA frá 14 ára aldri.
Jóhann Már hefur unnið fjölda Íslands- bikar- og deildarmeistaratitla. Hann hefur sýnt yfirburði á síðasta og núverandi tímabili í Hertz-deild karla og var valinn besti sóknarmaðurinn á heimsmeistaramóti IIHF í apríl síðastliðnum.
Jóhann Már hefur leikið með landsliðum Íslands frá unglingsaldri og hefur átt fast sæti undanfarin ár í A landsliði karla. Jóhann Már er lykilmaður í landsliðinu, hefur átt mikinn þátt í árangri liðsins undan farin misseri og er til fyrirmyndar í alla staði.
„Íshokkísamband Íslands óskar Jóhanni Má innilega til hamingju með árangurinn,“ segir í tilkynningu á vef ÍHÍ.
UMMÆLI