Hlíðarfjall opnar 16. desember

Hlíðarfjall opnar 16. desember

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli mun opna næstkomandi föstudag, 16. desember, ef allt fer að óskum. Skíðasvæðið verður opið frá klukkan 16 til klukkan 19.

„Það hefur snjóað frekar lítið hjá okkur undanfarið en verið mikið frost og því hefur verið hægt að framleiða snjó allan sólarhringinn í nokkra daga og útlit fyrir að svo verði áfram,“ segir í tilkynningu Hlíðarfjalls.

Forsala vetrarkorta hefur verið framlengd til 5. janúar 2023.

Sambíó

UMMÆLI