Úrslit í ritlistakeppni Ungskálda 2022 voru kunngjörð á Amtsbókasafninu í gær. Fyrstu verðlaun hlaut Mars Baldurs fyrir verkið Þágufallssýki.
Alls bárust 57 verk í keppnina frá 27 þátttakendum. Úrslit voru sem hér segir:
- 1. sæti: Mars Baldurs fyrir verkið Þágufallssýki
- 2. sæti: Selma Dís Hauksdóttir fyrir verkið Tilfinningar og meiri tilfinningar
- 3. sæti: Guðrún María Aðalsteinsdóttir fyrir verkið Mávur verður vitni að maraþoni!
Í dómnefnd sátu Finnur Friðriksson, dósent við Háskólann á Akureyri, Sesselía Ólafsdóttir, leikkona og skáld, og Svavar Knútur Kristinsson, tónlistarmaður og textahöfundur. Tónlistaratriði við verðlaunaafhendinguna fluttu þau Júlíana Valborg Þórhallsdóttir og Dagur Nói Sigurðsson.
UMMÆLI