Akureyringum býðst LýðheilsukortMynd: Auðunn Níelsson

Akureyringum býðst Lýðheilsukort

Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt að bjóða barnafjölskyldum, eldri borgurum og öryrkjum með lögheimili í sveitarfélaginu sérstakt Lýðheilsukort gegn bindingu í eitt ár. Um er að ræða tilraunaverkefni sem veitir handhöfum kortsins ótakmarkaðan aðgang að Sundlaugum Akureyrar, Hlíðarfjalli og Skautahöllinni á Akureyri. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Kortin verða til sölu frá 10. nóvember 2022 til 1. mars 2023 og gilda í eitt ár frá kaupdegi. Að einu ári liðnu, eða í mars 2024, verður árangur af tilraunaverkefninu metinn og tekin ákvörðun um hvort halda skuli áfram á sömu braut.

„Meginmarkmið með útgáfu kortanna er að bæta lýðheilsu í heilsueflandi samfélagi með sérstaka áherslu á aukna samveru foreldra, barna og ungmenna undir 18 ára aldri, auk eldri borgara og öryrkja. Lýðheilsutilboðinu verður hlaðið inn á hin svokölluðu Skidata-kort sem verið hafa í notkun í Hlíðarfjalli og Sundlauginn á Akureyri. Lesara fyrir kortin verður komið upp í Skautahöllinni eins fljótt og auðið er. Vakin er athygli á því að þau sem ekki eiga skidata-kort nú þegar þurfa að kaupa það sérstaklega en slíkt kort kostar 1.100 kr. Afhending og virkjun lýðheilsukorta fer alfarið fram hjá Sundlaug Akureyrar,“ segir á Akureyri.is.

Bæjarbúar sem þess óska sækja um lýðheilsukort í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar á heimasíðunni Akureyri.is og hefst salan sem áður segir 10. nóvember nk. Rétt er að benda á að ekki verður hægt að sækja um eða kaupa Lýðheilsukortið í Sundlaug Akureyrar. Umsókn og val um greiðsluleið mun alfarið fara fram í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar.

Verðskrá gegn bindingu í 12 mánuði:

LýðheilsutilboðMánaðargjaldSamtals á ári
Tveir foreldrar og barn/börn þeirra yngri en 18 ára7.900 kr.94.800 kr.
Eitt foreldri og barn/börn þess yngri en 18 ára4.900 kr.58.800 kr.
Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar2.000 kr.24.000 kr.
Sambíó

UMMÆLI

Sambíó