Næsta laugardag, 1.október, mun Arctic Challenge í samstarfi við Ekruna halda dessert keppni í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Á næstu dögum verða keppendur kynntir til leiks hér á Kaffið.is. Í dag fáum við svör frá Davíði Þorsteinssyni.
Davíð Þorsteinsson
Færð þú þér einhvertíman eftirrétt í forrétt?
– Nei og finnst það bara frekar siðlaust
Ef þú mætir einungis borða einn eftirrétt alla þína ævi?
– Ég elska Crème brûlée, ef ég sé það á matseðli þá er ég mjög vís til að panta mér það
Hvaða af eftirfarandi er uppáhalds súkkulaðið þitt – Mjólkur súkkulaði, dökkt súkkulaði eða hvítt súkkulaði?
– Mér finnst mjólkursúkkulaði bragðbest en lang skemmtilegast að vinna með hvítt súkkulaði
Dessert keppnin er opin fyrir almenning og verða allir keppnis-eftirréttir til sýnis eftir keppnina.
Arctic Challenge eru félagssamtök gerð til þess að efla hugvit og ástríðu veitingamanna á Norðurlandi. Tilgangurinn er að búa til grundvöll fyrir samkeppni sem sameinar ástríðu og fagmennsku allra veitingastaða Akureyrar og einnig til að þétta veitingageirann á Akureyri saman.
Þann 10.janúar 2022 var keppnin Arctic Challenge haldin í fyrsta skipti á Strikið Restaurant. Sextán efnilegir keppendur kepptu þá í tveimur greinum keppninnar, Arctic Chef og Arctic Mixologist.
UMMÆLI