Þann 7. september síðastliðinn var lögregla kölluð til vegna alvarlegs umferðarslyss í Þingeyjarsveit. Þar hafði fjórhjól oltið þegar því var ekið eftir gömlum vegslóða, með þeim afleiðingum að ökumaðurinn, karlmaður á áttræðisaldri, slasaðist alvarlega. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Facebook.
Þar segir enn fremur að ökumaðurinn hafi verið fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri til aðhlynningar og síðar á Landspítala háskólasjúkrahús í Reykjavík þar sem hann lést þann 9. september síðastliðinn vegna áverka sinna. Lögreglan á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins og er hún langt komin.
UMMÆLI