KA menn heimsóttu FH í Hafnarfjörð í kvöld í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.
KA þóttu líklegri fyrir leik og þeir tóku forystuna á 18. mínútu er Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði. Staðan var 0-1 þegar var flautað til hálfleiks.
FH komu einbeittari til leiks í seinni hálfleik og náðu að skora 2 mörk og klára leikinn með 2-1 sigri. Mörk FH skoruðu Oliver Heiðarsson á 74. mínútu og Davíð Snær Jóhannsson á 93. mínútu.
Bryan Van Den Bogaert leikmaður KA fékk að líta rautt spjald á 70. mínútu þegar KA voru enn 0-1 yfir.
Það verða því Víkingur og FH sem mætast í bikarúrslitaleiknum. Þessi lið mættust einnig 2019 og þá höfðu Víkingar betur. Víkingar eru ríkjandi bikarmeistarar.
Mörkin í leiknum í kvöld má sjá hér að neðan.
Elfar Árni með markið fyrir KA á 17.mínútu leiksins – staðan er 0-1 pic.twitter.com/xHi9K71cEE
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) September 1, 2022
MARK – FH er búið að jafna leikinn – Oliver Hreiðarsson skorar markið á 74.mínútu – spenna í leiknum – KA menn manni færri pic.twitter.com/ltsJkedBn2
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) September 1, 2022
MARK – FH er komið yfir og allt stefnir í að FH fari í úrslitaleikinn á móti Víking – Davíð Snær Jóhannsson með svakalegt skot og mark og leiktíminn er að renna út pic.twitter.com/nNQriYiDV1
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) September 1, 2022
UMMÆLI