NTC

Nýtt starfsár Menningarfélags Akureyrar er hafið

Nýtt starfsár Menningarfélags Akureyrar er hafið

Leikfélag Akureyrar ríður á vaðið með verkinu Hamingjudagar (e. Happy Days) eftir Samuel Beckett. Sýningar fara fram í Black Box í Hofi og leikarar eru engin önnur en Edda Björg Eyjólfsdóttir og Árni Pétur Guðjónsson. Leikstjóri er Harpa Arnardóttir. Aðeins verða fjórar sýningar á Akureyri áður en verkið verður fært yfir í Borgarleikhúsið.

Haustið verður tileinkað einleikjum í Samkomuhúsinu. Söngleikurinn Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur eftir Bjarna Snæbjörnsson og Grétu Kristínu Ómarsdóttur. Einleikurinn Líf er eftir Margréti Sverrisdóttur sem leikur einnig en leikstjóri er Jenný Lára Arnórsdóttir og svo er það einleikurinn Fíflið sem er kveðjusýning Karls Ágústs Úlfssonar.

Í janúar er svo komið að stóru stundinni þegar Leikfélag Akureyrar í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands frumsýnir söngleikinn Chicago í Samkomuhúsinu. Með aðal hlutverkin fara Jóhanna Guðrún og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir. Leikstjóri er Marta Nordal.

Tónlistarárið hefst strax í september þegar heimsþekkti hljómsveitarstjórinn Anna Maria Helsing snýr aftur í Menningahúsið Hof til að stjórna Sinfóníuhljómsveit Norðurlands túlka síðustu Lundúnarsinfóníu Haydn og fyrstu sinfóníu Beethovens á tónleikunum Sú fyrsta og sú síðasta.

Í október er komið að félögunum JóaPé og Króla til að stíga á svið með sinfóníuhljómsveitinni. Í janúar verða glæsilegir Nýárstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands undir stjórn Daníels Þorsteinssonar ásamt stórsöngvurunum Þóru Einarsdóttur, Andra Birni Róbertssyni, Hönnu Dóru Sturludóttur og Degi Þorgrímssyni í Hofi. 

Bjarni Frímann Bjarnason stjórna Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á páskatónleikum sveitarinnar, Í dauðans böndum. Þar mun Brandenborgarkonsert Bachs og kórverk hans um þrautagöngu og leyndardóma handan grafar og dauða mæta sturlaðri og sundurskotinni skrumskælingu á einleikskonsert barrokktímans. 

Í maí er komið að viðburðinum Steinunn Arnbjörg og stofutónlistin. Á efnisskrá eru verk eftir Steinunni sjálfa, íslensk-kanadíska tónskáldið Véronique Vöku og Franz Schubert.

Nú um helgina fer fram Akureyrarvaka og þar af eru ýmsir spennandi viðburðir í Menningarhúsinu Hofi. Skoðaðu dagskrá Akureyrarvöku í Hofi og lestu nánar um starfsár Menningarfélagsins á mak.is.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó