María Catharina Ólafsdóttir Gros hefur snúið aftur í raðir knattspyrnuliðs Þór/KA en hún hefur verið hjá Celtic í Skotlandi í tæpt ár. María skrifaði undir samning við Þór/KA í dag og mun að óbreyttu leika með Þór/KA leika út núverandi og næstu leiktíð. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Þór/KA.
María Catharina hélt utan til Skotlands í atvinnumennsku á miðju tímabili í fyrra þegar hún gerði samning við hið sögufræga félag Celtic. Þar var hún í vetur og fram á vor, en rifti samningi sínum að lokinni leiktíðinni. Hún hefur að mestu spilað sem kantmaður og framherji, en hjá Celtic kom hún inn í stöðu vængbakvarðar. María spilaði 26 leiki með Celtic og skoraði fimm mörk.
María Catharina sem er fædd árið 2003 kom fyrst við sögu með meistaraflokki hjá Þór/KA 2018, þá 15 ára gömul. Hún á að baki 58 meistaraflokksleiki og níu mörk, flesta með Þór/KA, en einnig þrjá með Hömrunum þegar hún var þar í láni hluta sumars 2019. Þá hefur María verið í yngri landsliðum Íslands og á samtals að baki 29 leiki og þrjú mörk með U19, U17 og U16 landsliðunum.
UMMÆLI