Á föstudag þyngdi Landsréttur dóm yfir manni sem á síðasta ári var sakfelldur fyrir nauðgun og stórfellt brot í nánu sambandi, úr fimm ára fangelsi í sjö. Dómurinn hefur verið birtur á vef Landsréttar.
Maðurinn er jafnframt dæmdur til að greiða brotaþola, sem er fyrrverandi sambýliskona og barnsmóðir mannsins, fjórar milljónir í miskabætur. Í dómi Landsréttar segir að litið hafi verið til þess að háttsemi mannsins hafi verið sérlega gróf og ófyrirleitin, atlaga hans langvinn og að hann ætti sér engar málsbætur.
Sjá einnig: Fimm ára fangelsi fyrir grófa nauðgun á Akureyri
Héraðsdómur Norðurlands eystra sakfelldi manninn fyrir sérlega grófa nauðgun og brot í nánu sambandi sem átti sér stað á heimili hans á Akureyri í september 2020. Héraðsdómur dæmdi manninn til fimm ára fangelsisvistar auk greiðslu fjögurra milljóna króna í skaðabætur til brotaþola. Maðurinn áfrýjaði þeim dómi og krafðist ómerkingar á þeim grundvelli að dómari í málinu hafi verið vanhæfur. Landsréttur hafnaði ómerkingargröfunni.
Maðurinn hefur áður brotið gegn konunni en í júní 2019 var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir margítrekuð brot gegn henni frá hausti 2015 til júlí 2018.