Jarðskjálfti af stærðinni 2,9 varð klukkan 00.23 í nótt á Norðurlandi. Upptök hans voru 13 kílómetrum suðvestur af Flatey á Skjálfanda samkvæmt Veðurstofunni.
Skjálftinn fannst á Akureyri og nokkrir eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið, að því er fram kemur í tilkynningu Veðurstofunnar.
UMMÆLI