Aldís Kara Bergsdóttir tryggði sér um helgina sæti á Evrópumeistaramótinu á listskautum, fyrst íslenskra skautara. Aldís tryggði sér þátttöku á mótinu á Finlandia Trophy um helgina en þar bætti hún einnig eigið Íslandsmet í stuttu prógrami.
Aldís náði lágmarki fyrir Evrópumótið í Þýskalandi fyrir tveimur vikum og var einnig fyrsti Íslendingurinn sem náði því. EM fer fram í Tallinn í Eistlandi frá 10. til 16. janúar á næsta ári.
Sjá einnig: Aldís fyrsti Íslendingurinn sem nær lágmarki fyrir EM
UMMÆLI