Ludvig Kári Quartet mun spila á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. Þar verður ný plata þeirra kynnt og spiluð. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00.
Sjá einnig: Kvartett Ludvig Kára gefur út djassplötu
„Ludvig Kári Quartet mætir á Græna hattinn með jazzbræðinginn Rákir, nýr geisladiskur og vínylplata með frumsaminni íslenskri jazztónlist innblásinni af þoturákum í veðrahvolfi norðursins. Kvartettinn er skipaður úrvali jazzhljómlistarmanna og kom fram á Jazzhátíð Reykjavíkur 2019 og 2021 við fádæma góðar undirtektir,“ segir í tilkynningu frá bandinu.
Þetta verða seinni útgáfutónleikar kvartettsins af tveimur, en þeir fyrri voru haldnir á Jazzhátíð Reykjavíkur 30.ágúst.
Kvartettinn skipa:
Ludvig Kári Forberg á víbrafón
Phil Doyle á saxófóna
Róbert Þórhallsson á rafbassa
Einar Scheving á trommur
UMMÆLI