Breska ferðaskrifstofan Super Break mun halda áfram beinu flugi til Akureyrar. Þetta kemur fram í svari fyrirtækisins við spurn mbl.is. Í síðustu viku var tveimur flugvélum af þremur á vegum Super Break snúið til Keflavíkur að sökum þess að ekki var hægt að lenda á Akureyrarflugvelli.
Vélarnar óskuðu eftir því að fá að lenda í Leifsstöð vegna þess að skyggni á Akureyrarflugvelli þótti ekki nægilega gott. Koma þarf upp svökölluðum ILS-búnaði á Akureyrarflugvelli til að þotur geti lent þar þegar veður er ekki með besta móti.
„Super Break mun halda áfram að fljúga beint til Akureyrar eins og áætlanir gera ráð fyrir á næstu vikum,“ segir í svari ferðaskrifstofunnar. Öryggi farþega mun áfram verða í fyrirrúmi hjá fyrirtækinu og því verður lent á Akureyri þegar aðstæður leyfa.
Flugvöllurinn uppfyllir allar kröfur
„Flugvöllurinn á Akureyri uppfyllir alla alþjóðlega staðla og fyrirtækið mun halda áfram að fljúga til Akureyrar samkvæmt áætlunum,“ kemur fram í svari þegar spurt er hvort fluginu verði haldið áfram ef ILS-búnaðurinn verði ekki tryggður.
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra sagði um helgina að uppsetning ILS-búnaðarins muni kosta um 100 milljónir króna en líklega verður ekki hægt að fara í verkið fyrr en í vor eða sumar.
UMMÆLI