Kúabú á Norðurlandi hefur verið sektað af Matvælastofnun vegna meðferðar nautgripa en umhirða bindinga, hreinleika og klaufa kúnna hafi ekki verið virtar. Dagsektin er 30.000 kr. þar til úrbætur hafa verið gerðar en dagsektir falla niður ef umráðamaður dýra hefur bætt umhirðu nautgripana á fullnægjandi hátt, að mati Matvælastofnunar, innan fimm virkra daga frá ákvörðun stofnunarinnar um dagsektir.
Samkvæmt reglugerð um beitingu og hámark dagsekta í opinberu eftirliti með velferð dýra taka dagsektir gildi frá og með þeim degi sem þær eru ákvarðaðar og fram að þeim degi sem skyldu er fullnægt að mati Matvælastofnunar.
UMMÆLI