Birkir Bjarnason var á skotskónum í ensku Championship-deildinni í knattspyrnu er lið hans, Aston Villa, rúllaði upp Bristol City fyrr í dag. Lokatölur í leiknum urðu 5-0 fyrir Aston Villa.
Birkir byrjaði á varamannabekknum í leiknum en kom inn á 70. mínútu í stöðunni 3-0. Hann var ekki lengi að láta að sér kveða og skoraði 4. mark Aston Villa á 72. mínútu.
Annar íslendingur tók þátt í leiknum í dag en Hörður Björgvin Magnússon var tekinn útaf í hálfleik í liði Bristol City.
Hér má sjá myndband af marki Birkis.
UMMÆLI