NTC

Hafdís og Silja valdar til að keppa fyrir hönd Íslands á EMMynd: hfa.is/Ármann Hinrik

Hafdís og Silja valdar til að keppa fyrir hönd Íslands á EM

Þær Hafdís Sigurðardóttir og Silja Jóhannesdóttir hafa verið valdar til að keppa fyrir hönd Íslands í götuhjólreiðum á Evrópumótinu í september. Mótið verður haldið í Trentino héraði á Ítalíu dagana 8. til 12. september. Þetta kemur fram á vef HFA í dag.

Hafdís mun keppa í tveimur greinum, tímatöku og hefðbundinni götuhjólakeppni og Silja verður með henni í götuhjólakeppninni.

„Hafdís fór á HM síðasta haust og nældi sér þar í dýrmæta reynslu, sem mun án efa koma henni til góða nú. Silja kom eins og þruma úr heiðskíru lofti inn í A-flokk kvenna í götuhjólamótum sumarsins, þá sérstaklega þegar hún gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari í sinni fyrstu tilraun. Báðar fóru þær til Svíþjóðar í júlí með HRÍ og kepptu í PostNord U6 Cycle Tour með góðum árangri. HFA óskar þeim Hafdísi og Silju innilega til hamingju með að hafa komist í landsliðshópinn og óskar þeim góðs gengis á Ítalíu,“ segir í tilkynningu HFA.

Götuhjólakeppnin í kvennaflokki verður nokkuð frábrugðin því sem þekkist hér á landi, því hjólaðir verða 8 hringir í 13,2 kílómetra langri braut í borginni Trento. Í hverjum hring er 250m hækkun. Í tímatökunni verður svo farinn 22 kílómetra langur hringur með nokkrum kröppum beygjum.

Smelltu hér til að skoða heimasíðu mótsins.

Smelltu hér til að lesa frétt HRÍ um landsliðsvalið.

Sambíó

UMMÆLI