Arnór Þór Gunnarsson og félagar í Bergischer höfðu betur gegn Oddi Gretarssyni og Sigtryggi Daða Rúnarssyni í hörkuleik í þýsku B-deildinni í gærkvöldi. Lokatölur urðu 30:29 Bergischer í vil.
Arnór Þór hefur verið frábær með Bergischer í vetur og átti fínan leik. Hann skoraði fimm mörk. Oddur gerði eitt mark fyrir Balingen en Sigtryggur Daði komst ekki á blað.
Arnór og félagar eru sem fyrr í kjörstöðu með átta stiga forskot á toppi deildarinnar með 32 stig og 16 sigra úr fyrstu sautján leikjunum. Balingen er í 4. sæti með 23 stig.
UMMÆLI