Góðvinur barna, bókasafna (já og margra fullorðinna) sjálfur Harry Potter, á afmæli á laugardag 31. júlí. Líkt og hefð er orðin mun Amtsbókasafnið á Akureyri fagna deginum með pompi og prakt, föstudaginn 30. júlí. Potterdagurinn mikli var fyrst haldinn hátíðlegur á Amtsbókasafninu 2017 og hátt í 1000 manns hafa sótt viðburðinn ár hvert.
Hátíðarhöldin verða þó með öðru sniði í ár og áhersla lögð á að börn og fjölskyldur geti tekið þátt í hátíðarhöldunum í sínum „búbblum“ og án hópamyndanna. Viðburðurinn mun því ekki aðeins fara fram á Amtsbókasafninu heldur einnig heima í stofu og á götum úti, en fyrirtæki og stofnanir í miðbæ Akureyrar hafa lagt bókasafninu lið með því að lána glugga sína fyrir ratleik sem fer fram alla helgina.
Á bókasafninu, föstudaginn 30. júlí kl. 14-17:
Harry Potter pakkar – Börn fá afhenta Harry Potter pakka til þess að taka með sér heim. Í hverjum pakka leynist sitthvað skemmtilegt, svo sem fjölbragðabaunir, föndur og þrautir.
Göldrum líkast – Í sýningarrými safnsins verður hægt að skoða ýmsa töfrandi muni tengda veröld Harry Potter.
Taktu mynd af þér í galdraheiminum! – myndabakgrunnar og munir
Alla helgina:
Ratleikur um miðbæinn – Frá föstudegi til sunnudags verður hægt að koma auga á ýmsar persónur galdraheimsins í gluggum í miðbæ Akureyrar, getið þið fundið þær allar? Ratleikjablöð verður hægt að nálgast á Amtsbókasafninu á föstudag og rafrænt á heimasíðu safnsins alla helgina.
Hversu vel þekkir þú Harry Potter? – Kahoot spurningakeppni sem verður aðgengileg alla helgina. Tilvalið fyrir fjölskyldur að keppa sín á milli eða sem lið. Tengill verður settur í loftið á föstudag
UMMÆLI