Mikið hvassveðri og ofan koma er á Norðurlandi í dag. Björgunvarsveitir hafa haft í nógu að snúast. Á sjöunda tímanum í morgun voru þær ræstar út til að aðstoða bíl sem var fastur í nágrenni Þelamerkur í Hörgársveit. Þá fundu björgunarsveitir um sexleytið ferðalanga sem höfðu fest bíl sinn í Ljósavatnsskarði í nótt á leiðinni milli Akureyrar og Húsavíkur. Einnig hefur þurft aðstoð á Ólafsfjarðarvegi.
Lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynnti á Facebook síðu sinni að eftirtaldir vegir í umdæminu séu lokaðir: i Siglufjarðarvegur, vegurinn um Ólafsfjarðarmúla, Öxnadalsheiði, Víkurskarð og Hófaskarð. og Mývatns og Möðrudalsöræfi eru einnig lokuð.
Aðalsteinn Júlíusson starfandi aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Akureyri segir í samtali við mbl.is að hann eigi von á að fleiri vegum fyrir norðan verði lokað með morgninum vegna snjóflóðahættu. „Það er búið að kyngja niður það miklum snjó.“
Allt skólahald hefur verið fellt niður á Akureyri og í nágrenni og hefur lögreglan hvatt fólk til þess að vera ekki á ferðinni að óþörfu.
UMMÆLI