Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir úr UFA varð í dag Íslandsmeistari í 10.000 metra hlaupi kvenna. Sigþóra hljóp á 37:38,06 mínútum sem er hennar besti tími í greininni.
Sigþóra vann öruggan sigur en Íris Dóra Snorradóttir úr FH varð önnur á 40:13,50 mínútum og Fríða Rún Þórðardóttir úr ÍR varð þriðja á 41:01,51 mínútu.
Íslandsmótið í 10.000 metra hlaupi fór fram á Kópavogsvelli í dag en þar fer einnig fram Meistaramót Íslands í fjölþrautum.
UMMÆLI