Í kvöld var framboðslisti Miðflokksins í Norðausturkjördæmi samþykktur á félagsfundi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins og fyrrum forsætiráðherra leiðir listann.
Akureyringurinn Anna Kolbrún Árnadóttir er í öðru sæti á listanum en hún hefur setið á þingi síðan árið 2017.
Efstu sex sæti listans eru eftirfarandi.
1. sæti. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
2. sæti. Anna Kolbrún Árnadóttir.
3. sæti. Þorgrímur Sigmundsson.
4. sæti. Ágústa Ágústsdóttir.
5. sæti. Alma Sigurbjörnsdóttir.
6. sæti. Guðný Harðardóttir.
UMMÆLI