Þórsarar mættu Hetti í 16 liða úrslitum Maltbikarsins í körfubolta í gærkvöldi. Hattarmenn sitja á botni Domino’s deildarinnar í körfubolta.
Leikurinn var jafn en að lokum var það Höttur sem hélt forystunni til leiksloka. Lokatölur 81:74.
Marques Oliver var stigahæstur í liði Þórs með 19 stig og 19 fráköst, Pálmi Geir Jónsson og Ingvi Rafn Ingvarsson voru báðir með 16 stig. Pálmi tók 10 fráköst og Ingvi 5.
UMMÆLI