Fyrsti snjór vetrarins féll á Akureyri í gærmorgun. Að sögn lögreglunnar á Akureyri er um 15 sentímetra jafnfallinn snjór. Umferðaróhöpp voru óvenjumörg miðað við fyrstu snjókomu.
Lögreglan á Norðurlandi eystra fékk tilkynningu um tólf umferðaróhöpp á Akureyri og í nágrenni. Flest tengdust þau veðuraðstæðum.
Að sögn lögreglunnar urðu engin slys á fólki en svo virtist sem ökumenn hafi ekki alveg ráðið við aðstæðurnar.
UMMÆLI