Aðalstjórn Þórs hefur ákveðið að hefja vinnu um áætlun gegn einelti í samstarfi við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.
Markmið verkefnisins eru:
• Styrkja þjálfara og aðra starfsmenn íþróttafélagsins við að greina einelti og samskiptavanda og vinna saman gegn einelti og andfélagslegri hegðun.
• Styrkja viðbragðshóp Þórs í vinnu í (meintum) eineltismálum.
• Efla og styrkja foreldrasamfélag iðkenda.
Þessi vinna kostar nokkurt fé og nú biðlar félagið til áhugasamra sem vilja og geta styrkt félagið í þessari vinnu.
Áhugasamir geta snúið sér til framkvæmdastjóra í síma 461-2080 eða sent póst á valdi[at]thorsport.is.
UMMÆLI