Embætti héraðssaksóknara á hefur ákært tvo karlmenn á þrítugsaldri fyrir hættulega líkamsárás á Akureyri í júní 2015. Árásin átti sér stað fyrir utan Nætursöluna.
Annar mannanna er sagður hafa ráðist að þriðja manninum í miðbæ Akureyri og sparkað í líkama hans og kýlt hann með krepptum hnefa í vinstri vanga. Hinn ákærði er sagður hafa slegið fórnarlambið í höfuðið og líkama. Við árásina féll fórnarlambið í jörðina og spörkuðu þar árásarmennirnir í höfuð hans og efri búk.
Fórnarlambið fer fram á miska- og skaðabætur að fjárhæð tæplega 600 þúsund krónum og ákæruvaldið fer fram á að mennirnir verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Fórnarlambið hlaut skurð á vinstra augnloki, skrámur á handarbaki og verki í rifbeinum.
UMMÆLI