Framsókn

10 bestu – Berglind Ósk

10 bestu – Berglind Ósk

Berglind Ósk Guðmundsdóttir er gestur Ásgeir Ólafs í fyrsta þætti af fimmtu seríu hlaðvarpsins 10 bestu. Hlustaðu á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

„Berglind Ósk Guðmundsdóttir er ung kona á uppleið fædd í Kópavogi. Hún náði markmiði sínu að ná 2 sætinu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í norðaustur kjördæmi og stefnir á hið háa Alþingi aðeins 27 ára gömul í næstu kosningum. Hún starfar sem lögfræðingur á skrifstofu rektors Háskólans á Akureyri. Það er frábært að hlusta á hana tala vegna þess að hún virðist vita sína leið í lífinu. Fjölskylda hennar kallaði hana forsætisráðherrann eð þegar hun var lítil stelpa. Það var í raun vitað hvert hún stefndi. En hún lendir í að reyna að finna sig eins og allir aðrir og þrátt fyrir að hún telji sig finna að hún sé að eldast þá minnti þáttarstjórnandi hana á áð hún væri nú bara tuttugu og eitthvað.Það eru menntamálin sem eiga hennar hug og stefnir hún helst eitthvert innan þeirra. En annars var gaman að kynnast þessari brosmildu og lífsglöðu konu, tala um eitthvað allt annað en pólítik, en samt eitthvað. Og heyra líka listann hennar af 10 uppáhaldslögum hennar,“ segir Ásgeir um þáttinn.

Hlaðvörp á Kaffinu eru tekin upp í Podcast Stúdíói Akureyrar

VG

UMMÆLI

Sambíó