Framsókn

Kjörstaðir á Akureyri liggja fyrir

Verkmenntaskólinn á Akureyri. Mynd: vma.is.

Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt tillögur kjörstjórnar að Akureyrarkaupstað verði skipt í tólf kjördeildir fyrir komandi alþingskosningar þann 28. október nk. Tíu kjördeildir verða á Akureyri, ein í Hrísey og ein í Grímsey.

Á Akureyri verður kjörstaður í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Í Hrísey verður kjörstaður í Hríseyjarskóla.
Í Grímsey verður kjörstaður í Grímseyjarskóla.

Kjörfundir munu standa frá kl. 09:00 til kl. 22:00 næstkomandi laugardag.

VG

UMMÆLI

Sambíó