Rúmfatalagerinn á Akureyri flytur verslun sína af Glerártorgi yfir í Norðurtorg á næstunni. Að því tilefni er nú hafin rýmingarsala á vörum verslunarinnar á Glerártorgi.
50 prósent afsláttur er á öllum vörum nema prjónavöru og sumarvöru og þá er 70 prósent afsláttur af húsgagnasýnishornum sem eru ekki sumarhúsgögn.
Tekið skal fram að tilboðin gilda einungis í verslun Rúmfatalagersins á Glerártorgi.
UMMÆLI