Rapparinn Halldór Kristinn Harðarsson eða KÁ-AKÁ greindi frá því í dag að hann hefði lokið við upptökur á 5 laga teipi í vikunni. Lögin munu koma út á næstunni. Lögin vann Halldór rappari í samstarfi við Björn Val sem hefur unnið mjög náið með tónlistarmönnum eins og Emmsjé Gauta og Úlf Úlf.
KÁ-AKÁ hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn undanfarið ár og hafa lög á borð við Yuri og Draugar vakið miklar vinsældir.
Kláraði 5 laga teip í vikunni með @bjornvalurr allt trap bangers sem þú bouncar við afturí lúkuskerru með skyggðum rúðum í. Styttist í þau.
— Dóri Ká (@halldork) September 30, 2017
UMMÆLI