Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri munu afhenda tæki og búnað að andvirði 40 milljónir króna í nóvember. Jóhannes Bjarnason formaður hollvinasamtakanna greinir frá þessu í samtali við mbl.is. Þar segir hann að hollvinasamtaökin hafi verið ansi drjúg en það hitti þannig á núna að nóvember verði ansi stór hjá þeim.
Hollvinasamtökin voru stofnuð í desember árið 2013 frá upphafi hafa samtökin fært sjúkrahúsinu gjafir að andvirði á fjórða hundrað milljóna ef talin eru með tækin sem afhent verða í nóvember.
Dýrasta tækið sem verður afhent í nóvember er svokölluð ferðagjörgæsla fyrir nýbura sem þarf að senda með sjúkraflugi. Einnig verða fest kaup á æfingatækjum og búnaði fyrir endurhæfingamiðstöðina Kristnes í Eyjafirðir.
„Það er mjög mikill kraftur í þessum félagsskap. Það eru náttúrulega komnir á fjórða þúsund félagar sem eru í hollvinasamtökunum sem er nú ansi drjúgt í ekki stærra bæjarfélagi,“ segir Jóhannes en nánar er rætt við hann á mbl.is.
UMMÆLI