Tryggvi Snær Hlinason, körfuboltamaðurinn efnilegi, er mættur til Spánar og farinn að hefja æfingar með Valencia körfuboltaliðinu í efstu deild á Spáni. Valencia birtir mynd af Tryggva á Twitter að því tilefni í dag. Með myndinni segir að Tryggvi sé fyrstur til að mæta eftir Eurobasket.
Tryggvi skrifaði undir samning við Valencia í júní eftir frábært tímabil í Domino’s deildinni með Þór. Liðið endaði í 8. sæti deildarinnar og komst í úrslitakeppnina. Tryggvi skoraði 11 stig og tók 8 fráköst að meðaltali síðasta vetur.
Tryggvi fetar í fótspor Jóns Arnórs Stefánssonar, eins besta körfuboltamanns í sögu Íslands, með því að skrifa undir samning hjá Valencia en Jón Arnór spilaði þar sitt síðasta ár í atvinnumennsku ásamt því að hafa spilað þar veturinn 2006-2007.
Tryggvi átti fína innkomu á sínu fyrsta stórmóti með A-landsliðinu í Helsinki með rúmlega 4 stig og um 3 fráköst á aðeins 11 mínútum. Tryggvi var einnig drjúgur í varnarleik liðsins með varið skot og breyttir ótal fleirum auk þess að stela 3 boltum í keppninni.
👋 ¡Bienvenido!
El primero en llegar desde el Eurobasket, el islandés Tryggvi Hlinason se une al grupo. ¡Bienvenido a la #FamiliaTaronja! pic.twitter.com/E1QGGJFEra— Valencia Basket Club (@valenciabasket) September 12, 2017
UMMÆLI