Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tekur þátt í æfingamóti í Rússlandi sem hluta af undirbúningi fyrir Evrópumótið í haust. Liðið heldur til Rússlands í dag en þar mun liðið mæta Þýskalandi og Ungverjalandi ásamt heimamönnum. Hópurinn sem fer til Rússlands er nánast sá sami og tók þátt í æfingaleikjum gegn Belgí í síðasta mánuði en þó hafa 4 leikmenn verið teknir úr hópnum.
Miðherjinn stóri og stæðilegi Tryggvi Snær Hlinason er í hópnum en Tryggvi spilaði mjög vel á Evrópumóti undir 20 ára og var valinn í úrvalslið mótsins þar. Tryggvi hefur verið að vekja mikla athygli og er kominn á radarinn hjá ýmsum liðum í NBA deild Bandaríkjanna. Tryggvi gerði samning við Spánarmeistara Valencia í vor eftir frábært tímabil með Þór Akureyri í Dominos deildinni.
Leikmannahópurinn sem ferðast til Rússlands:
Martin Hermannsson – Chalon-Reims
Ægir Þór Steinarsson – San Pablo
Kristófer Acox – KR
Hlynur Bæringsson – Stjarnan
Jón Arnór Stefánsson – KR
Elvar Már Friðriksson – Barry Háskólinn í Bandaríkjunum
Sigtryggur Arnar Björnsson – Tindastóll
Hörður Axel Vilhjálmsson – Astana
Logi Gunnarsson – Njarðvík
Pavel Ermolinskij – KR
Ólafur Ólafsson – Grindavík
Haukur Helgi Pálsson – Cholet
Tryggvi Snær Hlinason – Valencia
Brynjar Þór Björnsson – KR
UMMÆLI